logo-for-printing

23. nóvember 2004

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

 Fyrsti kafli hér að neðan um dráttarvexti er birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, og gilda dráttarvextir sem þar eru sýndir í sex mánuði í senn frá 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Annar kafli um almenna vexti er birtur samkvæmt  2. mgr. 10. gr., sbr. 4. og 8. gr. sömu laga og þriðji kafli samkvæmt  bráðabirgðaákvæði III í sömu lögum og gilda vextir samkvæmt II. og III. kafla næsta almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist. 

Vextir sem breytast eru merktir með stjörnu (*).  Innan sviga eru sýndir vextir fyrir breytingu. 

              Vextir alls á ári

 

I. Dráttarvextir af peningakröfum í krónum frá og með 1. desember 2004

1.

Grunnur dráttarvaxta 1

  5,75%

2.

Vanefndaálag 2

11,75%

3.

Dráttarvextir 3

17,5%

II. Almennir vextir

1.

Vextir óverðtryggðra lána skv. 4. gr. 4

9,0% * (8,5%)

2.

Vextir verðtryggðra lána skv. 4. gr. 4

  4,2%

3.

Vextir af skaðabótakröfum 5

  6,0% * (5,7%)

III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt 6

1.

Bandaríkjadollurum

   5,5%

2.

Sterlingspundum

   8,0%                                                                                            

3.

Dönskum krónum

   5,5%

4.

Norskum krónum

  5,5%

5.

Sænskum krónum

   5,5%

6.

Svissneskum frönkum

   5,0%

7.

Japönskum jenum

   5,0%

8.

Evrum 7

   5,5%

Reykjavík, 23. nóvember 2004.
SEÐLABANKI ÍSLANDS

 

   Grunnur dráttarvaxta eru gildandi vextir algengustu skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana, nú ávöxtun í endurhverfum verðbréfakaupum Seðlabankans.
2   Vanefndaálag er ellefu hundraðshlutar, nema um annað sé samið skv. 2. mgr. 6. gr. laganna. Seðlabankanum er þó heimilt að ákveða annað vanefndaálag að lágmarki sjö hundraðshlutar og að hámarki fimmtán hundraðshlutar.
3  Dráttarvextir eru samtala grunns dráttarvaxta og vanefndaálags. Seðlabankinn skal birta dráttarvexti eigi skemur en viku fyrir gildistökudaga dráttarvaxta sem eru 1. janúar og 1. júlí ár hvert.
4   Almenna vexti sbr. 3. gr. laganna skal því aðeins greiða af peningakröfu að það leiði af samningi, venju eða lögum. Þegar hundraðshluti þeirra eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki tiltekin, skulu vextir vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir skv. 10. gr. laganna. Þar sem um verðtryggða kröfu er að ræða skulu vextir vera jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum verðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir skv. 10. gr. laganna.
   Í bráðabirgðaákvæði I í lögum nr. 38/2001 segir: 'Nú segir í lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við vegið meðaltal ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum, meðalútlánsvexti viðskiptabanka og sparisjóða eða meðalútlánsvexti sem Seðlabanki Íslands birtir, eða vísað er með öðrum almennum hætti til vaxta á markaði, og skulu þá vextir af þessum peningakröfum, eftir gildistöku laganna, vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 3,5% þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að viðbættum 2,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.
   Nú segir í lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á hverjum tíma, hæstu vexti á markaðnum eða vísað er með öðrum almennum hætti til hæstu vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir gildistöku laganna vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 4,5%, þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að viðbættum 3,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.'
5  Vextir af kröfum um skaðabætur, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna skulu á hverjum tíma vera jafnháir tveimur þriðju hlutum vaxta sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. málslið 4. gr. laganna.
6   Í bráðabirgðaákvæði III í lögum nr. 38/2001 segir: 'Nú segir í lánssamningi í erlendum gjaldmiðli, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að við vanskil reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir eins og þeir eru á hverjum tíma, dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands eða dráttarvextir samkvæmt vaxtalögum, eða vísað er með öðrum hætti til dráttarvaxta sem Seðlabankinn ákvað skv. 11. gr. laga nr. 25/1987, og skulu þá dráttarvextir þessir vera ákvarðaðir með sama hætti næstu fimm árin eftir gildistöku laga þessara, en að þeim tíma loknum skulu þeir vera jafnháir þeim dráttarvöxtum í hlutaðeigandi gjaldmiðli sem síðast voru auglýstir af Seðlabankanum í Lögbirtingablaði fimm árum eftir gildistöku laganna.'
7   Sömu vextir gilda af peningakröfum í myntum aðildarlanda myntbandalags Evrópu (EMU) og í evrum.

Nr. 11/2004

Til baka