logo-for-printing

14. október 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 22,1 milljarð króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 14. október. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 22,1 milljarður króna en á innlausn voru 21,6 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 21. október n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti (pdf-skjal, 87 kb)

Nr. 42/2003
14. október 2003

Til baka