logo-for-printing

04. febrúar 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 45,8 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 4 febrúar. Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 45,8 milljarðar króna en á innlausn voru 48 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 11. febrúar n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr. 6/2003
4. febrúar 2003

Til baka