logo-for-printing

05. apríl 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok mars 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í mars 2002 og frá ársbyrjun 2002. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 362 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna í lok hans.  Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 0,02%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljarði króna í marslok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,2 milljörðum króna. 
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust í mars um 4,5 milljarða króna og námu 90,4 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu þær 5,5 milljörðum króna. 
Seðlar og mynt í umferð jukust um rúmlega hálfan milljarð króna í mars.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 31,4 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 31,4 milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst í mars um 5,9 milljarða króna og nam 40,5 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

 

Nr. 12/2002
5. apríl 2002

 


Til baka