logo-for-printing

06. mars 2001

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í febrúar 2001 og frá ársbyrjun 2001. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,5 milljarða króna í febrúar og nam 34,6 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 401 milljónar Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, styrktist í mánuðinum um 0,25%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir rúmlega 1 milljarð króna í febrúar.
Erlend skammtímalán bankans drógust saman um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 20,9 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,2 milljörðum króna í febrúarlok á markaðsverði, um 0,2 milljörðum króna minna en í fyrra mánuði. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,4 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 1 milljarð króna í febrúar og námu 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 0,8 milljarða króna og voru 18,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,3 milljarða króna í febrúar og voru neikvæðar um 14 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana námu 14 milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst um 0,2 milljarða króna í febrúar og nam 27,9 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettó gjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettó kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir , þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttó kröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

 

Nr. 11/2001
6. mars 2001

 

 

Til baka