logo-for-printing

06. desember 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í nóvember og frá ársbyrjun.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 2,7 milljarða króna í nóvember og nam í lok mánaðarins 31,4 milljörðum króna (jafnvirði 433 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 1,6 milljarða króna. Tímabundnar erlendar lánahreyfingar ríkissjóðs leiddu til stækkunar forðans á haustmánuðum (sbr. fréttir bankans nr. 64/1999 og 71/1999) en þær gengu að fullu til baka í nóvember. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar var því sem næst óbreytt í mánuðinum.
Erlend skammtímalán Seðlabankans hækkuðu um 2,5 milljarða króna í nóvember. Í lok mánaðarins námu erlend langtímalán bankans 1,2 milljörðum króna og höfðu lækkað um 3,9 milljarða króna frá ársbyrjun.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 7,4 milljörðum króna í nóvemberlok miðað við markaðsverð og lækkaði um 0,9 milljarða króna í mánuðinum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 5,7 milljarða króna í nóvember og námu 23,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 2,8 milljarða króna í mánuðinum og voru 8,5 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í nóvember og voru þær neikvæðar um 8,4 milljarða króna í lok mánaðarins. 
Grunnfé bankans jókst um 4,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 27,8 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 77/1999
6. desember 1999

 

Til baka