logo-for-printing

25. október 1999

Seðlabanki Íslands birtir nýjar hagtölur á heimasíðu sinni

Seðlabanki Íslands hefur í dag útgáfu ítarlegs talnaefnis á heimasíðu sinni, www.sedlabanki.is. Þar munu vikulega birtast nýjar tölfræðilegar upplýsingar um íslenskt efnahagslíf sem unnar eru í Seðlabankanum, og varða þær einkum þá þætti sem heyra beint undir verksvið Seðlabanka Íslands. Talnaefni þetta var að hluta til birt í Hagtölum mánaðarins sem Seðlabankinn gaf út frá 1974 þar til í september sl. Stefnt er að reglubundinni birtingu hinna vikulegu hagtalna, Hagtalna Seðlabankans, kl. 16 á mánudögum. Hver vikuleg birting er stöðluð, þ.e. hún hefur að geyma sömu töflur hverju sinni, en með nýjum tölum þar sem við á.
Jafnframt verður sú nýbreytni tekin upp að birta daglega á heimasíðunni nýjar upplýsingar um gengi og vexti á innlendum mörkuðum. Þær upplýsingar verða birtar um hádegi hvern virkan dag.
Þeir sem þess óska geta gerst áskrifendur að fjölritaðri mánaðarlegri útgáfu af talnaefninu, Hagtölum Seðlabankans, gegn greiðslu áskriftargjalds. Fyrir þá sem hafa greiðan aðgang að veraldarvefnum er hins vegar handhægara og ódýrara að nálgast töflusafnið á heimasíðu bankans.
Þessar breytingar eru liður í þeirri viðleitni Seðlabanka Íslands að koma upplýsingum á framfæri við almenning með skilvirku móti og jafnframt að verða við þeim kröfum sem alþjóðlegir staðlar og upplýsingatækni kalla á hverju sinni.
Áskriftarsími Seðlabanka Íslands er 569-9785.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands, Sveinn E. Sigurðsson framkvæmdastjóri tölfræðisviðs bankans varðandi útgáfu töflusafnsins (Hagtalna Seðlabankans) og Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri varðandi heimasíðuna, í síma 569-9600.

Nr.67 /1999
25. október 1999

 

Til baka