logo-for-printing

01. október 1999

Breytingar á útgáfumálum Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands mun á næstu mánuðum koma nýrri skipan á útgáfu rita bankans. Síðasta tölublað Hagtalna mánaðarins, sem bankinn hefur gefið út í aldarfjórðung, kemur út í dag. Economic Statistics, sem ársfjórðungslega hefur birt haggögn og fréttir af íslensku efnahagslífi á ensku, kom út í síðasta sinn í ágúst sl. Ný rit á íslensku og ensku auk töflusafns á heimasíðu bankans leysa eldri ritin af hólmi.
Upp úr miðjum október næstkomandi er áformað að Seðlabankinn hefji útgáfu talnaefnis á veraldarvefnum (www.sedlabanki.is). Þar munu vikulega birtast nýjar tölfræðilegar upplýsingar. Þeir sem þess óska geta gerst áskrifendur að fjölritaðri mánaðarlegri útgáfu af talnaefninu gegn greiðslu áskriftargjalds. Fyrir þá sem hafa greiðan aðgang að veraldarvefnum verður hins vegar handhægara og ódýrara að nálgast töflusafnið á heimasíðu bankans.
Í nóvember næstkomandi mun Seðlabankinn hefja útgáfu nýs ársfjórðungsrits sem koma mun út því sem næst samtímis á íslensku og ensku. Áskrifendur Hagtalna mánaðarins munu sjálfkrafa fá fyrsta ársfjórðungsritið sent sér að kostnaðarlausu, en áskriftargjald verður innheimt frá og með áramótum, eins og nánar verður tilkynnt um í fyrsta tölublaði ritsins. Hið nýja rit verður að sjálfsögðu einnig aðgengilegt á vefsetri bankans án endurgjalds og fyrr en hin prentaða útgáfa.
Tilgangur ofangreindra breytinga er að skapa öflugri vettvang fyrir Seðlabankann til þess að gera grein fyrir stefnu sinni og miðla upplýsingum til almennings. Breytingarnar munu gera bankanum kleift að koma til móts við kröfur um gagnsæ vinnubrögð við mótun peningastefnunnar og tímanlega miðlun upplýsinga.
Áskriftarsími Seðlabanka Íslands er 569-9785.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands, Már Guðmundsson aðalhagfræðingur bankans varðandi ársfjórðungsrit og Sveinn E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri tölfræðisviðs bankans varðandi útgáfu töflusafns, í síma 569-9600.

Nr. 62/1999
1. október 1999

Til baka