logo-for-printing

Greiðslumiðlun

16. apríl

Mars 2024

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 112,9 ma.kr. í mars sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 48,3 ma.kr en velta kreditkorta var 64,6 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í mars sl. nam 85,7 ma.kr. sem er um 1,4 ma.kr. lægri velta miðað við mars á síðasta ári. Skiptist veltan þannig að velta debetkorta var 37,9 ma.kr en velta kreditkorta var 47,8 ma.kr.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 24,3 ma.kr. í mars sl. sem er 2,5 ma.kr hærri velta miðað við mars 2023.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í mars 2024 var um 23,0 ma.kr. sem jafngildir um 0,7 ma.kr. hærri veltu miðað við mars árið 2023.

Tölur eru byggðar á upplýsingum frá íslenskum færsluhirðum og kortaútgefendum.
Vinsamlegast athugið að frá og með septembermánuði 2020 er innlend debetkortavelta í bönkum og hraðbönkum undanskilin í kortaveltutölum. Sama gildir um greiðslur kreditkorta m.v. innheimtutímabil.



Næsta birting: 16. maí 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is