logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

09. apríl

Febrúar 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.475,5 ma.kr. í lok febrúar og hækkuðu um 78 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.653,8 ma.kr. og séreignadeilda 821,7 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.568,5 ma.kr. og lækkuðu um 44,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.486,7 ma.kr. og lækkuðu um 4,4 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.045 ma.kr. og lækkuðu um 47,6 ma.kr. Innlend útlán námu 648,6 ma.kr. og hækkuðu um 2,2 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 2.907 ma.kr. í lok febrúar og hækkuðu um 122,7 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.819,9 ma.kr. og hækkuðu um 118,9 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 296 m.kr. og námu 11,4 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.461,5 ma.kr. í lok febrúar.


Næsta birting: 07. maí 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is