logo-for-printing

Raungengi

08. apríl

Mars 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 93,4 stig í mars sl. og hækkaði um 0,6% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 5,7% hærri í mars sl. samanborið við mars árið 2023.

Á fyrsta ársfjórðungi 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 92,2 stig (2005=100) sem er 2,6% hækkun miðað við fjórða ársfjórðung 2023.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 94,4 stig (2005=100) á fjórða ársfjórðungi 2023, lækkaði um 1,7% miðað við þriðja ársfjórðung 2023.


Næsta birting: 08. maí 2024

Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is
Hagfræði og peningastefna | raungengi@sedlabanki.is