Greiðslumiðlun
https://sedlabanki.is/?pageid=3ac92fba-fd5d-11e4-93fd-005056bc2afe&newsid=6a700605-a379-11ec-9ba1-005056bccf91
15. september
Ágúst 2023
Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 116,7 ma.kr. í ágúst sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 51,4 ma.kr en velta kreditkorta var 65,3 ma.kr.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í ágúst sl. nam 91,6 ma.kr. sem er aukning um 5,4 ma.kr. miðað við ágúst á síðasta ári. Skiptist veltan þannig að velta debetkorta var 41,1 ma.kr en velta kreditkorta var 50,6 ma.kr.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 22,3 ma.kr. í ágúst sl. sem er aukning um 0,3 ma.kr miðað við ágúst árið 2022.
Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í ágúst 2023 var 42,8 ma.kr. sem jafngildir 4,2 ma.kr. hærri veltu miðað við sama mánuð árið 2022.
Vakin er athygli á því að uppfærðar hafa verið tölur fyrir júlí sl.
Tölur eru byggðar á upplýsingum frá íslenskum færsluhirðum og kortaútgefendum.
Vinsamlegast athugið að frá og með septembermánuði 2020 er innlend debetkortavelta í bönkum og hraðbönkum undanskilin í kortaveltutölum. Sama gildir um greiðslur kreditkorta m.v. innheimtutímabil.

Næsta birting:
16.
október 2023
Töflur
Tímaraðir
Lýsigögn
Annað tengt efni