logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

07. mars

Janúar 2023

Eignir lífeyrissjóða námu 6.791,3 ma.kr. í lok janúar og hækkuðu um 153,1 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.069,3 ma.kr. og séreignadeilda 722,1 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.353,1 ma.kr. og hækkuðu um 32,0 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.363,1 ma.kr. og hækkuðu um 30,4 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.054,4 ma.kr. og hækkuðu um 8,2 ma.kr. Útlán námu 563,5 ma.kr. og hækkuðu um 7,0 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 2.438,2 ma.kr. í lok janúar og hækkuðu um 121,1 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.359,5 ma.kr. og hækkuðu um 121,6 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 2,8 ma.kr. og námu 10,6 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 6.778,1 ma.kr. í lok janúar.


Næsta birting: 04. apríl 2023


Umsjón

Gagnaþjónusta | adstod@sedlabanki.is