
Raungengi
https://sedlabanki.is/?pageid=3ac92fba-fd5d-11e4-93fd-005056bc2afe&newsid=de709d21-f5a3-11e1-af0e-001ec9ed78b2
08. janúar
Desember 2020
Raungengi íslensku krónunnar var 85,2 stig í desember sl. og hækkaði um 5,4% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 6,8% lægri í desember samanborið við sama mánuð árið 2019.
Á fjórða ársfjórðungi 2020 nam vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 82,0 stigum (2005=100) sem er 1,5% hærra miðað við þriðja ársfjórðung 2020.
Á þriðja ársfjórðungi 2020 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar 84,5 stig (2005=100) og hafði lækkað um 0,5% frá öðrum ársfjórðungi 2020 - (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á fjórða ársfjórðungi 2020 verður birt í byrjun mars n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).
Næsta birting:
08.
febrúar 2021
Töflur
Tímaraðir
Lýsigögn
Annað tengt efni
Umsjón
Upplýsingatækni og gagnasöfnun | fjarmalamarkadir@sedlabanki.isHagfræði og peningastefna | raungengi@sedlabanki.is