Seðlar í gildi
Sýna allt
10.000 kr.
Fyrst settur í umferð árið 2013. Stærð seðilsins er 70 x 162 mm. Aðallitur er blár.
Á framhlið er mynd af Jónasi Hallgrímssyni, Háafjalli og Hraundranga. Á bakhlið er blýantsteikning Jónasar af fjallinu Skjaldbreið. Einnig eru þar myndir af lóum og hörpuskel. Borðar og mynstur eru unnin út frá mynstursbekk á kápu tímaritsins Fjölnis.
Blindramerki er fjögur lárétt upphleypt strik á framhlið.
5.000 kr.
Fyrst settur í umferð árið 1986. Í nóvember 2003 setti Seðlabankinn í umferð nýja gerð 5000 króna seðils. Stærð seðilsins er 70 x 155 mm. Aðallitur er dökkblár á fjöllitum grunni.
Á framhlið er Ragnheiður Jónsdóttir biskupsfrú á Hólum og Gísli Þorláksson biskup ásamt tveimur fyrri konum sínum, Gróu Þorleifsdóttur og Ingibjörgu Benediktsdóttur.
Á bakhlið er Ragnheiður Jónsdóttir ásamt tveimur stúlkum við hannyrðir og til hliðar er fangamark úr sjónabók Ragnheiðar.
Borðar og grunnmynstur á báðum hliðum ásamt útsaumsletri á framhlið er gert eftir altarisklæði úr Laufáskirkju í Þjóðminjasafni.
Blindramerki er þrjú lóðrétt og upphleypt strik á framhlið.


2.000 kr.
Fyrst settur í umferð árið 1995. Stærð seðilsins er 70 x 150 mm.
Aðallitur er brúnn og gulur á framhlið, en blár og gulur á bakhlið.
Á framhlið er mynd af Jóhannesi S. Kjarval listmálara; að baki hans er stílfærður hluti af málverki Kjarvals, Úti og inni.
Á bakhlið má sjá myndina Flugþrá eftir Kjarval og teikningu hans, Kona og blóm.
Blindramerki er upphleyptur opinn þríhyrningur á framhlið.


1.000 kr.
Fyrst settur í umferð árið 1984. Í nóvember 2004 setti Seðlabanki Íslands í umferð nýja gerð seðilsins. Stærð seðilsins er 70 x 150 mm.
Aðallitur á framhlið er fjólublár á fjöllitagrunni. Þar er mynd af Brynjólfi Sveinssyni (1605-1675) Skálholtsbiskup, auk borða og bakgrunni með myndefni af rekkjurefli í Þjóðminjasafni og á fleti er verðgildi í bókstöfum með leturgerð af skírnarfonti úr Brynjólfskirkju.
Á bakhlið er mynd af Brynjólfskirkju í Skálholti og að baki sneiðmynd af kirkjunni. Grunnmynstur er hið sama og í borða á framhlið. Til hliðar er Maríumynd úr fingurgulli úr eigu Brynjólfs biskups.
Blindramerki er tvö lóðrétt og upphleypt strik á framhlið.


500 kr.
Fyrst settur í umferð árið 1981. Í október 2005 setti Seðlabanki Íslands í umferð nýja gerð seðilsins. Stærð seðilsins er 70 x 145 mm. Aðallitur er rauður með fjöllitaívafi á framhlið.
Á framhlið er mynd af Jóni Sigurðssyni forseta, borði dreginn eftir fyrirmynd á 500 kr. seðli Landsbanka Íslands árið 1944, grunnmynstur eftir veggteppi úr eigu Jóns Sigurðssonar.
Á bakhlið er Jón Sigurðsson við skriftir, veggteppi og aðrir munir úr safni Jóns Sigurðssonar í Þjóðminjasafni, til hliðar er mynd af Lærða skólanum í Reykjavík þar sem þingfundir voru haldnir í tíð Jóns Sigurðssonar.
Blindramerki er eitt lóðrétt og upphleypt strik á framhlið

Öryggisþættir
Öryggisþættir hafa verið til staðar í seðlum í mörg hundruð ár. Einn fyrsti öryggisþátturinn í seðlum var handskrifuð undirskrift, en margir þættir hafa bæst við, svo sem sérunninn pappír, vatnsmerki, öryggisþráður og upphleypt prentun. Síðustu ár hafa seðlabankar sett í umferð nýja seðla með fleiri og fullkomnari öryggisþáttum. Einnig hafa nokkrir seðlabankar uppfært eldri seðla sína í sama tilgangi. Í töflu hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir öryggisþætti íslenskra seðla í umferð í dag.
Sýna allt
10.000 kr. öryggisþættir
 | Vatnsmerki Í vatnsmerki er andlitsmynd Jóns Sigurðssonar forseta. Merkið sést vel ef seðli er haldið móti birtu. Myndin sést á báðum hliðum seðilsins. |
 | Optiks öryggisþráður og gluggi Í seðlinum er 18 millimetra breiður öryggisþráður með glugga. Á þræðinum má sjá síendurtekna blómamynd og textann 10000 KRÓNUR sem er sjáanleg þegar seðlinum er haldið móti ljósi. |
 | Optiks öryggisþráður og sjálflýsandi borðar Í seðlinum er breiður öryggisþráður. Í þræðinum eru tveir sjálflýsandi borðar sem verða sjáanlegir undir útfjólubláu ljósi. |
 | Optiks öryggisþráður á bakhlið Í seðlinum er breiður öryggisþráður með glugga. Á þræðinum má sjá síendurtekna blómamynd og textann 10000 KRÓNUR sem er sjáanleg þegar seðlinum er haldið móti ljósi. |
 | Upphleypt prentun Á báðum hliðum seðilsins er upphleypt prentun sem nema má með fingurgómi. Upphleypta prentun á framhlið má finna á andlitsmynd, á ljóði, blindramerki og á tölunni 10000 efst vinstra megin. Upphleypta prentun á bakhlið má finna á mynd af lóum, í ljóði, á tölunum 10000 neðst vinstra megin og efst hægra megin og á mynd af hörpudisk. |
 | Númer með rauðu letri á framhlið Númer seðilsins er prentað í rauðum lit á framhlið. |
 | Númer á framhlið Númer seðilsins er prentað í rauðum lit á framhlið. Undir útfjólubláu ljósi verður letrið gult. |
 | Örletur Í línu undir mynd af Jónasi er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu orðið SEÐLABANKI ÍSLANDS. |
 | Örletur í tölum Talan 10000 stendur lárétt með skyggðu letri í bláum lit efst til vinstri á framhlið og einnig á bakhlið. Á dökkum flötum í tölustöfunum er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu skammstöfunina SÍ. |
 | Bjart vatnsmerki Við hliðina á andlitsmynd Jóns Sigurðssonar er bjart vatnsmerki – talan 10000. |
 | Smáletur Fyrir miðju á framhlið er smáletur. Smáletrið er í samfelldum lóðréttum línum í Háafjalli og Hraundranga. Línurnar eru myndaðar með nýyrðum sem Jónas Hallgrímsson smíðaði. |
 | Lýsandi reitur Þegar útfjólubláu ljósi er varpað á framhlið seðilsins birtist ofarlega fyrir miðju lýsandi grænn reitur með tölunni 10000. |
 | Vatnsmerki í hornum Horn seðilsins er styrkt með vatnsmerki sem gerir hann endingarbetri og öruggari. |
 | Pappírsgerð Pappír er úr hrábómull og hefur viðkomu ólíka venjulegum pappír. |
 | Blindramerki Á framhlið seðilsins er sérstakt merki, fjögur lárétt strik, sem eru upphleypt til glöggvunar fyrir blinda og sjónskerta. |
5.000 kr. öryggisþættir
 | Vatnsmerki Í vatnsmerki er andlitsmynd Jóns Sigurðssonar forseta. Merkið sést vel ef seðli er haldið móti birtu. Myndin sést á báðum hliðum seðilsins. |
 | Öryggisþráður Öryggisþráður í gljáandi málmlitbrigðum er yfir þveran seðilinn, 1,2 mm á breidd, til skiptis sjáanlegur eða hulinn á framhlið. Sé seðlinum haldið móti ljósi sést þráðurinn óslitinn. Á þræðinum stendur 5000KR. |
 | Upphleypt prentun Á báðum hliðum seðilsins er dökkblá upphleypt prentun sem nema má með fingurgómi. |
 | Örletur Í línu undir andlitsmynd Ragnheiðar Jónsdóttur biskupsfrúar er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu orðin SEÐLABANKI ÍSLANDS. |
 | Númer með rauðu letri á framhlið Númer seðilsins er prentað í rauðum lit á framhlið. Undir útfjólubláu ljósi verður letrið gult. |
 | Örletur í tölum Talan 5000 stendur lárétt með skyggðu letri í bláum lit efst til vinstri á framhlið og er tvítekin á bakhlið seðilsins. Á dökkum flötum í tölustöfunum er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu skammstöfunina SÍ. |
 | Gyllt málmþynna Stækkað munstur úr grunni seðilsins birtist sem gyllt málmþynna ofarlega á miðri framhlið. Þynnuna er ekki unnt að ljósrita. Nafn Ragnheiðar Jónsdóttur og ártölin 1646–1715 eru prentuð yfir málmþynnuna. |
 | Bjart vatnsmerki Við hliðina á andlitsmynd Jóns Sigurðssonar er komið nýtt bjart vatnsmerki – talan 5000. |
 | Smáletur Til hægri á framhlið seðilsins er við efri og neðri brún bylgjudregið smáletur í grunni. Letrið myndar í sífellu orðin SEÐLABANKI ÍSLANDS. |
 | Lýsandi reitur Þegar útfjólubláu ljósi er varpað á framhlið seðilsins birtist ofarlega til hægri lýsandi grænn reitur með tölunni 5000. |
 | Pappírsgerð Pappír er úr hrábómull og hefur viðkomu ólíka venjulegum pappír. |
 | Blindramerki Á framhlið seðilsins er sérstakt merki, þrjú lóðrétt strik sem eru upphleypt til glöggvunar fyrir blinda og sjónskerta. |
2.000 kr. öryggisþættir
 |
Vatnsmerki
Í vatnsmerki er andlitsmynd Jóns Sigurðssonar forseta. Merkið sést vel ef seðli er haldið móti birtu. Myndin sést á báðum hliðum seðilsins. |
 |
Öryggisþráður
Öryggisþráður er um þveran seðilinn. |
 |
Upphleypt prentun
Á báðum hliðum seðilsins er upphleypt prentun sem nema má með fingurgómi. |
 |
Númer á vinstri hlið
Númer til vinstri á framhlið sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi. |
 |
Undirskriftir
Áritun bankastjóra verður sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi. |
 |
Örletur
Í línu yfir mynd sem er neðst til hægri á bakhlið er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu orðin SEÐLABANKI ÍSLANDS. |
 |
Númer á hægri hlið
Númer til hægri á framhlið sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi. |
 |
Örletur í tölum
Í dökkum flötum í tölustöfunum 2000 á framhlið og bakhlið er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu skammstöfunina SÍ. |
 |
Pappírsgerð
Pappír er úr hrábómull og hefur viðkomu ólíka venjulegum pappír. |
 |
Blindramerki
Á framhlið seðilsins er sérstakt merki, þríhyrningur sem er upphleyptur til glöggvunar fyrir blinda og sjónskerta. |
1.000 kr. öryggisþættir
 | Vatnsmerki Í vatnsmerki er andlitsmynd Jóns Sigurðssonar forseta. Merkið sést vel ef seðli er haldið móti birtu. Myndin sést á báðum hliðum seðilsins. |
 | Öryggisþráður Öryggisþráður í gljáandi málmlitbrigðum er ofinn í seðilinn lóðrétt, 1,2 mm á breidd, til skiptis sjáanlegur eða hulinn á framhlið. Sé seðlinum haldið móti ljósi sést þráðurinn óslitinn. Á þræðinum stendur 1000KR. |
 | Upphleypt prentun Á báðum hliðum seðilsins er upphleypt prentun sem nema má með fingurgómi. |
 | Örletur Í línu undir mynd af kirkju á bakhlið er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu orðin SEÐLABANKI ÍSLANDS. Örletur má einnig finna undir mynd af Brynjólfi Sveinssyni á framhlið. Letrið þar myndar í sífellu orðin SEÐLABANKI ÍSLANDS. |
 | Númer með rauðu letri á framhlið Númer seðilsins er prentað í rauðum lit á framhlið. Undir útfjólubláu ljósi verður letrið gult. |
 | Örletur í tölustöfum Talan 1000 stendur lárétt með skyggðu letri í fjólubláum lit efst til vinstri á framhlið og er tvítekin á bakhlið seðilsins. Á dökkum flötum í tölustöfunum er örletur sem unnt er að greina með stækkunargleri. Letrið myndar í sífellu skammstöfunina SÍ. |
 | Silfurlituð málmþynna Tígullaga munstur tengt grunni seðilsins birtist sem silfurlituð málmþynna ofarlega á framhlið. |
 | Smáletur Til hægri á framhlið seðilsins er við efri og neðri brún bylgjudregið smáletur í grunni. Letrið myndar í sífellu orðin SEÐLABANKI ÍSLANDS. |
 | Lýsandi reitur Þegar útfjólubláu ljósi er varpað á framhlið seðilsins birtist neðarlega fyrir miðju lýsandi grænn reitur með tölunni 1000. |
 | Pappírsgerð Pappír er úr hrábómull og viðkomu ólíka venjulegum pappír. |
 | Vatnsmerki í hornum Horn seðilsins eru styrkt með vatnsmerki sem gera hann endingarbetri og öruggari. |
 | Blindramerki Á framhlið seðilsins er sérstakt merki, tvö lóðrétt strik sem eru upphleypt til glöggvunar fyrir blinda og sjónskerta. |
500 kr. öryggisþættir
ÖRYGGISÞÆTTIR |
|
500
breyttur
|
1000
breyttur
|
2000
|
5000
breyttur
|
10000
|
Vatnsmerki með andlitsmynd |
*
|
*
|
*
|
*
|
*
|
Öryggisþráður |
*
|
*
|
*
|
*
|
*
|
Upphleypt prentun á báðum hliðum |
*
|
*
|
*
|
*
|
*
|
Númer til hægri á framhlið sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi |
*
|
*
|
*
|
*
|
*
|
Númer til vinstri á framhlið og áritun bankastjóra sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi |
|
|
*
|
|
|
Lína með örletri |
*
|
*
|
*
|
*
|
*
|
Örletur í tölum |
*
|
*
|
*
|
*
|
*
|
OPTIKS I
|
Málmþynna |
|
*
|
|
*
|
*
|
Öryggisþráður með texta |
*
|
*
|
|
*
|
|
Bjart vatnsmerki |
|
|
|
*
|
*
|
Smáletur |
*
|
*
|
|
*
|
*
|
Lýsandi reitur |
*
|
*
|
|
*
|
*
|
Vatnsmerki í hornum |
*
|
*
|
|
|
*
|
Blindramerki |
|
|
||
|
D
|
|||
|
||||
|
Optiks er samsettur úr mörgum öryggisþáttum. Hann er 18 millimetra breiður öryggisþráður. Í öryggisþræðinum má finna texta. Undir útfjólubláu ljósi birtast tveir sjálflýsandi borðar. Í þræðinum er gluggi.