Fara beint í Meginmál
7097 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
25. nóvember 2026

Skilavald Seðlabanka Íslands hefur yfirfarið skilaáætlanir fyrir kerfislega mikilvægu bankana þrjá – Arion banka, Íslandsbanka, og Landsbankann. Áætlanirnar voru uppfærðar eftir því sem tilefni var til. Áætlanirnar ná til framkvæmdar skilameðferðar bankanna ef til þess kæmi að fjárhagsstaða þeirra yrði svo slæm að þeir teldust vera á fallanda fæti.

Kalkofninn
25. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hóf reglubundin gjaldeyriskaup af viðskiptavökum í maí 2026. Meginmarkmið kaupanna er að mæta tilfallandi gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og viðhalda þannig stærð gjaldeyrisforða bankans. En hvers vegna þarf Seðlabankinn að kaupa gjaldeyri fyrir hönd ríkissjóðs og hvert er hlutverk bankans í þeim viðskiptum?

Rit og skýrslur
25. nóvember 2026

Seðlabankar og fjármálaeftirlit Norður- og Eystrasaltslandanna hafa  sameiginlega gefið út skýrslu um eiginfjárkröfur viðskiptabanka. Í henni er fjallað um eiginfjárkröfur bankanna og hvernig löndin beita hinu sameiginlega evrópska regluverki sem lýtur að eiginfjárkröfum.

Rit og skýrslur
25. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „Nowcasting Icelandic GDP growth: can mixed-frequency bayesian VARs improve real-time nowcasts?“ eftir Melkorku Ýr Bustos meistaranema við Barcelona School of Economics og Bjarna G. Einarsson, hagfræðing hjá Seðlabankanum.

Rit og skýrslur
24. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „The only way is up? Asymmetric exchange rate pass-through in scraped daily price data“ eftir Alisar Nakour, Bjarna G. Einarsson, Þorstein S. Sveinsson og Pálmar Þorsteinsson, hagfræðinga hjá Seðlabankanum.

Fjármálaeftirlit
23. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur birt yfirlit yfir árleg áhrif heildarkostnaðar á ávöxtun íslenskra sjóða. Yfirlitinu er ætlað að auðvelda neytendum að bera saman kostnað einstakra sjóða og átta sig á áhrifum kostnaðar á ávöxtun fjárfestingar.

20. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 10/2026, dagsettri 20. okt. sl., þar sem meginvextir bankans eru óbreyttir. 
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2026.

Fjármálaeftirlit
19. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hélt 29. október sl. fræðslufund fyrir stjórnarmenn eftirlitsskyldra aðila undir yfirskriftinni „Hvað einkennir virka og árangursríka stjórn?“

Peningastefna
19. nóvember 2026

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytur erindi á peningamálafundi Viðskiptaráðs. Fundurinn ber yfirskriftina Hagkerfið í ölduróti.

Peningastefna
18. nóvember 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.