Fara beint í Meginmál
7055 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Fjármálaeftirlit
14. október 2026

Hér með tilkynnist um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns frá Anderzorg N.V. til Menzis Zorgverzekeraar N.V. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 4. ágúst 2026 frá Hollenska fjármálaeftirlitinu, DNB.

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu ekki síðar en 2. nóvember nk.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Peningastefna
7. október 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Peningastefna
6. október 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands, miðvikudaginn 7. október 2026, kl. 8:30. Vefútsending hefst klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar á kynningarfundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

Rit og skýrslur
29. september 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út uppfærða handbók með QMM þjóðhagslíkani bankans sem endurspeglar breytingar í fimmtu útgáfu líkansins.  Handbókin er á ensku og ber titilinn QMM - A quarterly macroeconomic model of the Icelandic economy, version 5.0. Handbókin er birt sem rannsóknarritgerð (Working paper) númer 102.

Rit og skýrslur
29. september 2026

Seðlabanki Íslands birtir ársfjórðungslega yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og stöðu fjármálakerfisins, Hagvísa Seðlabanka Íslands. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.

Rit og skýrslur
23. september 2026

Í Fjármálastöðugleika er tvisvar á ári birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga.

23. september 2026

Fjármálakerfið hér á landi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt.

22. september 2026

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands verður birt kl. 8:30 á morgun, 23. september 2026. Ritið Fjármálastöðugleiki verður birt á vef bankans klukkan 8:35.

21. september 2026

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 08/2026, dagsettri 20. ágúst sl., þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 31. október 2026.

18. september 2026

Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika hélt í dag erindi á málstofu um stafrænt fullveldi á Lagadeginum sem Lögmannafélag Íslands og Lögfræðingafélag Íslands stóðu fyrir. Þar fjallaði hann um efnahagslegt sjálfstæði í stafrænum heimi með sérstaka áherslu á stafrænt fullveldi, viðnámsþrótt og greiðslumiðlun.