Fara beint í Meginmál
6974 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
20. maí 2026

Grunnur dráttarvaxta er breyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 04/2026 dagsettri 20. apríl sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,25 prósentur síðan þá. Dráttarvextir breytast sem því nemur og verða 15,50% fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2026.

20. maí 2026

Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2025 verður kynnt og er til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, fimmtudaginn 21. maí 2026, klukkan 9:00. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika verða gestir á fundinum.

Rit og skýrslur
20. maí 2026

Ritið Peningamál gerir ársfjórðungslega grein fyrir horfum í peningamálum og þar er birt spá um verðbólgu sem gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

20. maí 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Peningastefna
20. maí 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands í dag, miðvikudaginn 20. maí 2026, kl. 8:30. Peningamál verða birt kl. 8:35 og vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar og efni Peningamála á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

13. maí 2026

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti meiri verðbólgu næsta árið en í síðustu könnun í janúar, en gera þó ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt í byrjun næsta árs. Þá búast markaðsaðilar við því að gengi krónunnar gagnvart evru verði svipað eftir eitt ár og það var þegar könnunin var framkvæmd.