Fara beint í Meginmál
6993 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
11. júní 2026

Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika flutti á þriðjudag erindi á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu um skattlagningu fjármálafyrirtækja. Þar fjallaði Tómas um hvernig eiginfjárkörfur viðskiptabanka og vaxtalaus bindiskylda Seðlabankans stuðla að stöðugleika við aðstæður mikillar óvissu í efnahagsmálum.  Niðurstaða Tómasar var m.a. að arðsemi íslenskra banka væri ágæt þrátt fyrir þær kröfur sem gerðar væru til þeirra.

11. júní 2026

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í dag álit sendinefndar sinnar (e. Concluding Statement) eftir viðræður við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila síðustu tvær vikur. Viðræðurnar voru hluti af árlegri úttekt sjóðsins á stöðu og horfum í íslensku atvinnulífi (e. Article IV Consultation).

4. júní 2026

Í gær fór fram fimmtánda úthlutun menningarstyrks sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals fyrrum seðlabankastjóra. Menningarstyrknum er fyrst og fremst ætlað að styðja viðleitni einstaklinga og hópa sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti lands og þjóðar sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Fjármálaeftirlit
4. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands óskaði nýverið eftir upplýsingum frá eftirlitsskyldum aðilum sem hafa starfsheimildir til að veita fjárfestingarþjónustu um hvort þeir nýti sér þjónustu fjárhrifavalda (e. finfluencer) við markaðssetningu og/eða miðlun upplýsinga til almennings.

4. júní 2026

Mánudaginn 8. júní 2026 kl. 13:00–14:30 í Sölvhóli, fundarsal Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 í Reykjavík. Dominik Menno, hagfræðingur hjá Deutsche Bundesbank flytur erindi byggt á grein hans og Jan Hannes Lang (Evrópski seðlabankinn) „A structural model of capital buffer usability"  (ECB Working Paper Series, nr. 3188).

4. júní 2026

Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var 32,1 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 2,5% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 23,4 ma.kr. en 29,3 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Halli af frumþáttatekjum nam 20,6 ma.kr. og 17,3 ma.kr. af rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins versnaði um 2,1% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist jákvæð um 42,9% af landsframleiðslu í lok ársfjórðungsins.

Peningastefna
3. júní 2026

Í samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands er hér birt fundargerð nefndarinnar, en fundargerðina skal birta tveimur vikum eftir að ákvörðun nefndarinnar er kynnt.

3. júní 2026

Til að auka sveigjanleika í innlendri greiðslumiðlun og draga úr líkum á að truflanir á netsambandi hindri viðskipti verður almenningi senn gert kleift að greiða með greiðslukortum hér á landi, þ.e. debet- og kreditkortum, þótt nettenging rofni.

Rit og skýrslur
3. júní 2026

Ritið Álagspróf 2026 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Í ritinu eru niðurstöður álagsprófs á kerfislega mikilvæga banka kynntar og fjallað um áhrif af breyttu regluverki við mat á áhættu útlána banka. Einnig er fjallað um sjónarmið og mælikvarða sem litið er til við kvörðun sviðsmynda fyrir kerfisleg álagspróf Seðlabanka Íslands.

Rit og skýrslur
3. júní 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út sérrit um viðbúnað fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum. Ritið er liður í að skilgreina frekar þau atriði sem huga þarf að við viðbúnað kerfisins til að halda uppi þeirri grunnþjónustu sem samfélagið reiðir sig á, svo sem greiðslumiðlun, uppgjör viðskipta, aðgengi heimila og fyrirtækja að fjármunum og geta þeirra til móttöku og greiðslu fjármuna.