Fara beint í Meginmál
7083 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Rit og skýrslur
11. nóvember 2026

Ársskýrsla Seðlabanka Íslands um þróun svika í greiðsluþjónustu hefur verið birt. Skráðum svikatilvikum við millifærslur fjölgaði úr 322 árið 2023 í 1.358 árið 2025 og hafa þau því meira en fjórfaldast á tveimur árum. Skráð svikatilvik við notkun greiðslukorta voru um 29 þúsund árið 2025, álíka mörg og árið 2023, eftir fækkun árið 2024. Fjárhæð skráðra svika við notkun greiðslukorta nam um 510 milljónum króna árið 2025 og við millifærslur um 845 milljónum króna. Skráð fjárhagslegt tjón vegna svika við millifærslur nam um 683 milljónum króna, samanborið við um 172 milljónir króna árið 2024.

Peningastefna
11. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 2. til 4. nóvember sl. Leitað var til 37 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör bárust frá 31 aðila og var svarhlutfallið því 84%.

10. nóvember 2026

Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur samþykkt beiðni Seðlabanka Íslands um aðgang að endurhverfum viðskiptum eða EUREP-fyrirgreiðslunni (Eurosystem Repo Facility for Central Banks). Hún veitir bankanum aðgang að lausafé í evrum til skamms tíma og er því til þess fallin að auka viðnámsþrótt og sveigjanleika við stýringu gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Fjármálaeftirlit
9. nóvember 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Peningastefna
6. nóvember 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu hélt erindi í dag fyrir MBA-nemendur við Háskóla Íslands um peningastefnuna á umbrotatímum.

Fjármálaeftirlit
4. nóvember 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf í desember 2025 athuganir á því hvort verklag og eftirlit þriggja lífeyrissjóða með umframgreiðslum og uppgreiðslum húsnæðislána væri fullnægjandi og í samræmi við kröfur laga og reglugerða um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Athuganirnar tóku til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Niðurstöður athugananna lágu fyrir í ágúst 2026.

Fjármálaeftirlit
2. nóvember 2026

Skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2025 verður kynnt og verður til umræðu á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, þriðjudaginn 3. nóvember 2026 klukkan 9:00. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, verða gestir fundarins.

Fjármálaeftirlit
2. nóvember 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

30. október 2026

Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika hélt erindi um nýjar greiðslulausnir á Íslandi á ráðstefnunni Money Live Nordic Banking í Kaupmannahöfn. Þar fjallaði hann mikilvægi nýrra greiðslulausna við að efla efnahagslegt öryggi og viðnámsþrótt í greiðslumiðlun.