Fara beint í Meginmál
7059 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
19. október 2026

Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fór fram í Bangkok í Taílandi í liðinni viku.  Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika tóku þátt í fundinum ásamt öðrum fulltrúum Seðlabanka Íslands. Fram kom á fundinum að heimshagkerfið hefði sýnt umtalsverðan viðnámsþrótt þrátt fyrir röð áfalla. Horfur einkennist þó áfram af mikilli óvissu og því sé mikilvægt að vinna að því að efla viðnámsþrótt, m.a. með því að endurbyggja svigrúm í ríkisfjármálum.

Peningastefna
19. október 2026

Karen Á. Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, hélt erindi á reikningsskila- og fjármáladegi Félags löggiltra endurskoðenda. Í erindi sínu fjallaði Karen um stöðu og horfur í efnahagsmálum og þær áskoranir sem eru fram undan.

15. október 2026

Þriðjudaginn 20. október verður haldin málstofa í Seðlabanka Íslands frá klukkan 15:00-16:00 þar sem Þórarinn G. Pétursson varabankastjóri peningastefnu kynnir nýja rannsókn á áhrifum launa á verðbólgu. Titill rannsóknarinnar er "It's complicated: The impact of wages on inflation".

14. október 2026

Seðlabanki Íslands mun halda áfram reglubundnum gjaldeyriskaupum sínum á millibankamarkaði fram til 30. nóvember nk. Kaupin verða þó minnkuð úr 12 milljónum evra á viku í 6 milljónir evra á viku frá og með 16. október. Kaupin fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum skömmu eftir opnun markaðarins, þrjár milljónir evra í hvert skipti.

Fjármálaeftirlit
14. október 2026

Hér með tilkynnist um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns frá Anderzorg N.V. til Menzis Zorgverzekeraar N.V. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 4. ágúst 2026 frá Hollenska fjármálaeftirlitinu, DNB.

Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu ekki síðar en 2. nóvember nk.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Peningastefna
7. október 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Peningastefna
6. október 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands, miðvikudaginn 7. október 2026, kl. 8:30. Vefútsending hefst klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar á kynningarfundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

Rit og skýrslur
29. september 2026

Seðlabanki Íslands birtir ársfjórðungslega yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og stöðu fjármálakerfisins, Hagvísa Seðlabanka Íslands. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.

Rit og skýrslur
29. september 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út uppfærða handbók með QMM þjóðhagslíkani bankans sem endurspeglar breytingar í fimmtu útgáfu líkansins.  Handbókin er á ensku og ber titilinn QMM - A quarterly macroeconomic model of the Icelandic economy, version 5.0. Handbókin er birt sem rannsóknarritgerð (Working paper) númer 102.

Rit og skýrslur
23. september 2026

Í Fjármálastöðugleika er tvisvar á ári birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga.