Fara beint í Meginmál

Sjálfbærnitengdar fullyrðingar – nýjar leiðbeiningar ESMA 28. október 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vekur athygli á að hinn 12. október 2026 birti Evrópska verðbréfa- og markaðseftirlitið (ESMA) tvær nýjar leiðbeiningar um sjálfbærnitengdar fullyrðingar, með áherslu á fullyrðingar um áhrif (e. impact) og umbreytingu (e. transition). Leiðbeiningarnar ESMA eru aðgengilegar hér:

Impact claims [esma.europa.eu]

Transition claims [esma.europa.eu]

Á sama hátt og í fyrri leiðbeiningum ESMA, útgefnum  1. júlí 2025 og 14. janúar 2026, eru birtar hagnýtar leiðbeiningar um hvað skuli og skuli ekki gera við framsetningu sjálfbærnitengdra fullyrðinga, með dæmum um góða og slæma framkvæmd sem byggja á markaðsvenjum.

Seðlabankinn hvetur eftirlitsskylda aðila og aðra áhugasama aðila að kynna sér efnið sem hér um ræðir.