![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2021
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_vetur_2.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2020 dags 18. desember sl. þar sem að engin meginvaxtaákvörðun hefur verið af hálfu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands síðan þá.
Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,50%.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,50% fyrir tímabilið 1. - 28. febrúar 2021.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2021:
• Vextir óverðtryggðra útlána 3,30%
• Vextir verðtryggðra útlána 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,20%