logo-for-printing

18. mars 2020

Yfirlýsingar peningastefnunefndar og fjármálastöðugleikanefndar

Bygging Seðlabanka Íslands

Fjármálastöðugleikanefnd og peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hafa fundað í vikunni. Útbreiðsla COVID-19 veirunnar og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi og annars staðar til að hefta framgang veirunnar hafa neikvæð áhrif á efnahagshorfur og fjármálaleg skilyrði. Nefndirnar hafa skoðað til hvaða mótvægisaðgerða þær geti gripið. Bæði þjóðarbúið og fjármálakerfið hér á landi eru vel í stakk búin til þess að takast á við áföll og eru nefndirnar tilbúnar til þess að beita þeim tækjum sem þær hafa yfir að ráða til þess að draga úr neikvæðum efnahagslegum áhrifum þessa áfalls.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,75%.

Sjá hér nánar í yfirlýsingu peningastefnunefndar 18. mars 2020.

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að aflétta 2% kröfu um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki og verður hann því 0%.

Sjá hér nánar í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar 18. mars 2020.

Sjá nánar hér minnisblað um sveiflujöfnunarauka 18. mars 2020.

Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán 3,50%
2. Lán gegn veði til 7 daga 2,50%
3. Innlán bundin í 7 daga 1,75%
4. Viðskiptareikningar 1,50%
5. Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%

Sjá nánar hér:

Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands. Vextir gilda frá og með 18. mars 2020. Bindihlutfall gildir frá og með 21. mars 2020.

Til baka