Fara beint í Meginmál
7043 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Peningastefna
11. september 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu hélt erindi í dag á fundi Félags atvinnurekanda um peningastefnu við aðstæður óvissu og þrálátrar verðbólgu.

10. september 2026

Seðlabanki Íslands hefur nýverið undirritað samstarfssamning við Seðlabanki Frakklands um að efla fjármálalæsi og auka aðgengi að fræðsluefni um fjármál. Samstarfið felur meðal annars í sér að laga að íslenskum aðstæðum efni úr frönsku þjóðaráætluninni um fjármálalæsi (EDUCFI), sem Seðlabanki Frakklands leiðir. Samningurinn er liður í viðleitni beggja bankanna til að auka þekkingu og skilning almennings á fjármálum og efnahagsmálum.

10. september 2026

Í tilefni af útgáfu íslenskrar þýðingar bókarinnar Geymdu akörnin þín (e. Save Your Acorns) eftir Robert Gardner, býður Seðlabanki Íslands til málstofu um fjármálalæsi og fjármálafræðslu fyrir börn og ungmenni í dag.

Fjármálaeftirlit
7. september 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Treehaven ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 4. september 2026, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.

3. september 2026

Á öðrum ársfjórðungi 2026 var 120,3 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 9,3% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 154,4 ma.kr. en 66,6 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Halli af frumþáttatekjum nam 18,0 ma.kr. og 14,5 ma.kr. af rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 6,8% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist jákvæð um 46,9% af landsframleiðslu í lok ársfjórðungsins.

Peningastefna
2. september 2026

Fundargerð fundar peningastefnunefndarinnar 17.-18. ágúst 2026 hefur verið birt. Á honum ræddi nefndin efnahagsþróunina, þróun á fjármálamörkuðum, ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum og kynningu þeirra ákvarðana 19. ágúst.

1. september 2026

Seðlabanki Íslands hefur hafið reglulega birtingu gagna um gjaldeyrisviðskipti innlendra viðskiptabanka með íslensku krónuna. Gögnin sýna mánaðarlega veltu á gjaldeyrismarkaði og ná til bæði kaupa og sölu íslenskra króna fyrir erlenda gjaldmiðla í stundarviðskiptum (e.spot).

Peningastefna
28. ágúst 2026

Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, sóttu nýverið fundi hjá fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica Finance. Karen kynnti efni nýútgefinna Peningamála 2026/3 og Þórarinn fjallaði um og svaraði spurningum varðandi yfirlýsingu peningastefnunefndar og nýlega vaxtaákvörðun.

27. ágúst 2026

Seðlabankinn stóð fyrir málstofu föstudaginn 28. ágúst 2026 kl. 10:00–11:00 þar sem Sophia Gilbukh, lektor við CUNY Baruch College, Zicklin School of Business flutti erindi byggt á grein sinni „New Listing Alert: Alternative Theory of Housing Search."

27. ágúst 2026

Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika flutti í dag erindi á haustfundi um fasteignamarkaðinn sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stóð fyrir. Þar fjallaði hann um stöðu fasteignamarkaðarins og áhrif lánþegaskilyrða.