Innfluttar vörur mynda stóran hluta neyslukörfu heimila hér á landi og mörg aðföng til innlendrar framleiðslu eru innflutt. Breytingar á gengi krónunnar geta því haft töluverð áhrif á almenna verðlagsþróun. Mat á áhrifum gengisbreytinga á verðlag, svonefnds gengisleka (e. exchange rate pass-through), veitir innsýn í verðákvarðanir fyrirtækja og þróun verðbólgu og nýtist við efnahagsgreiningar og mótun peningastefnunnar. Mikilvægt er að slíkt mat fari fram reglulega þar sem áhrifin geta verið breytileg yfir tíma. Fyrri greiningar benda til að gengisleki hér á landi sé tiltölulega mikill en að hann hafi minnkað eftir því sem verðstöðugleiki hefur aukist. Í þessari grein er einblínt á áhrif gengis á verð mat- og drykkjarvöru og að auki kannað hvort áhrif gengisbreytinga séu samhverf, þ.e. hvort þau séu jafn mikil þegar gengi krónunnar hækkar og þegar það lækkar.