Fara beint í Meginmál
7015 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
10. júlí 2026

Fjármálaeftirliti Seðlabankans berast nú tilkynningar um tölvupóst þar sem eftirlitið er ranglega titlað sem sendandi. Í þeim kemur fram að hægt sé að smella á tiltekinn hlekk og fá þá háar fjárhæðir endurgreiddar.

Fjármálaeftirlit
10. júlí 2026

Í frétt Seðlabanka Íslands frá 1. júlí sl.„Óheimilt er að veita þjónustu með sýndareignir án starfsleyfis frá og með 1. júlí 2026“, var fjallað um gildistöku laga nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir. Frá og með þeim degi er aðeins aðilum sem hafa hlotið starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (Crypto-Asset Service Provider – CASP) heimilt að veita þjónustu með sýndareignir.

Rit og skýrslur
9. júlí 2026

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2026 hefur verið birt. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni. Skýrslan fjallar um ákvarðanir peningastefnunefndar um beitingu stjórntækja í peningamálum og þróun verðbólgu á tímabilinu janúar til júní 2026.

Fjármálaeftirlit
8. júlí 2026

Evrópska kerfisáhætturáðið (ESRB) hefur birt viðvörun um kerfislega netáhættu sem stafað getur af háþróuðum gervigreindarlíkönum (e. frontier AI models). ESRB bendir á að slík líkön geti breytt netógnarumhverfi fjármálakerfisins og aukið hraða, umfang og flækjustig netárása.

1. júlí 2026

Á fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 1. og 2. júní 2026 var farið yfir ýmsa þætti er varða fjármálastöðugleika. Auk þess voru teknar ákvarðanir um að halda gildi sveiflujöfnunarauka óbreyttu og tekin ákvörðun um hvaða innviðir teljist kerfislega mikilvægir.

Fjármálaeftirlit
1. júlí 2026

Frá og með 1. júlí 2026 er aðeins þeim aðilum sem hafa fengið starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (Crypto-Asset Service Provider – CASP), samkvæmt lögum nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir, heimilt að veita þjónustu með sýndareignir.

Fjármálaeftirlit
26. júní 2026

Hinn 25. júní 2026 veitti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Spesíu eignastýringu hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Fjármálaeftirlit
26. júní 2026

Hinn 25. júní 2026 veitti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Myntkaupum ehf. starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna samkvæmt lögum nr. 101/2025, um markaði fyrir sýndareignir.

Rit og skýrslur
26. júní 2026

Seðlabanki Íslands birtir ársfjórðungslega yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og stöðu fjármálakerfisins, Hagvísa Seðlabanka Íslands. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.