logo-for-printing

14. febrúar 2023

Ásgerður Ósk Pétursdóttir skipuð í peningastefnunefnd

Ásgerður Ósk Pétursdóttir hefur verið skipuð í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Ásgerður Ósk Pétursdóttir hefur verið skipuð í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

Forsætisráðuneytið hefur birt frétt um skipun Ásgerðar Óskar Pétursdóttur, lektors í hagfræði við Háskólann í Bath á Englandi, í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands frá 21. febrúar nk. til næstu fimm ára. Ásgerður mun taka sæti Gylfa Zoëga sem setið hefur í peningastefnunefnd frá árinu 2009 en hann hefur setið hámarksskipunartíma í nefndinni.

Ásgerður er með doktorspróf í hagfræði frá University of New South Wales í Sydney, Ástralíu og lauk meistaraprófi í hagfræði frá sama háskóla. Hún hefur unnið á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands og stundað rannsóknir við rannsóknardeild Seðlabankans í Svíþjóð. Rannsóknir og kennsla Ásgerðar eru á sviði peningahagfræði. Hún hefur þróað og unnið með líkön til að greina hagfræðileg úrlausnarefni er varða m.a. fjármálamarkaði, rafræna seðlabankamynt og framkvæmd peningastefnu. Ásgerður hefur haldið fjölda fyrirlestra um rannsóknir sínar við seðlabanka og aðra stofnanir víða um heim.

Sjá nánar um peningastefnunefnd.


Til baka