Meginmál
6584 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Fréttir og tilkynningar
13. júní 2025

Sturla Pálsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta, sl. 20 ár, tekur við sem forstöðumaður skilavalds Seðlabanka Íslands. Haukur C. Benediktsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs, er settur framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og Flóki Halldórsson, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns skilavalds, er settur framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika.

Fréttir og tilkynningar
13. júní 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fjármálafyrirtækja, þ.e. viðskiptabanka, sparisjóða, lánafyrirtækja og verðbréfafyrirtækja, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, fyrir árið 2024, auk upplýsinga um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða.

Fréttir og tilkynningar
13. júní 2025

Fjármálaeftirlitið óskaði eftir því í febrúar 2025 að aðilar sem falla undir gildissvið 1. mgr. 1. gr. laga um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar nr. 25/2023 svöruðu spurningalista um innleiðingu þeirra á skyldum 3. og 5. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2088 um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (hér eftir SFDR).

Fréttir og tilkynningar
12. júní 2025

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að auka reglubundin gjaldeyriskaup í 12 milljónir evra í hverri viku frá 13. júní 2025.

Fréttir og tilkynningar
11. júní 2025

Seðlabanki Íslands hefur sent forsætisráðherra greinargerð í tilefni af því að verðbólga fór í aprílmánuði sl. yfir fráviksmörk verðbólgumarkmiðsins.

Fréttir og tilkynningar
6. júní 2025