Meginmál
6592 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Fréttir og tilkynningar
20. júní 2025

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Fréttir og tilkynningar
19. júní 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð. Bólivía og Bresku Jómfrúeyjar bætast við listann og Króatía fellur af listanum.

Rit og skýrslur
19. júní 2025

Í þessu öðru heftir af ritinu Vettvangur er fjallað um áform um útgáfu á rafevru og áhrif hennar hér á landi.

Fréttir og tilkynningar
16. júní 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur birt samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða og sambærilegum gögnum frá vörsluaðilum séreignarsparnaðar.

Fréttir og tilkynningar
13. júní 2025

Sturla Pálsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta, sl. 20 ár, tekur við sem forstöðumaður skilavalds Seðlabanka Íslands. Haukur C. Benediktsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs, er settur framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og Flóki Halldórsson, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns skilavalds, er settur framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika.

Fréttir og tilkynningar
13. júní 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fjármálafyrirtækja, þ.e. viðskiptabanka, sparisjóða, lánafyrirtækja og verðbréfafyrirtækja, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, fyrir árið 2024, auk upplýsinga um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða.