logo-for-printing

08. apríl 2022

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar 14. - 15. mars 2022

Mynd tekin af fjármálastöðugleikanefnd fyrir fund fyrir nokkru.
Mynd tekin af fjármálastöðugleikanefnd fyrir fund fyrir nokkru.

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hefur verið birt hér á vef Seðlabankans. Nefndin ræddi stöðu og horfur fyrir fjármálastöðugleika og helstu áhættuþætti, svo sem þróun efnahagsmála, áhættu fjármálafyrirtækja og fjármálakerfis, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, skuldsetningu heimila og fyrirtækja, stöðuna á fasteignamarkaði og eiginfjárstöðu fjármálafyrirtækja.

Jafnframt ræddi nefndin um öryggi og skilvirkni fjármálainnviða og mikilvægi þeirra fyrir stöðugleika fjármálakerfisins, sérstaklega í ljósi aukinnar netöryggisáhættu og stríðs í Evrópu. Þá ræddi nefndin skýrslu úttektarnefndar um reynsluna af starfi nefnda Seðlabanka Íslands 2020-2021.

Sjá hér: Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Fundur 14. -15. mars 2022 (12.fundur). Birt 8. apríl 2022.

Sjá nánari upplýsingar um nefndina hér.


Til baka