logo-for-printing

17. janúar 2022

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2021 er nú aðgengileg á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 17. nóvember 2021. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2021.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir seinni hluta ársins 2021

Hér er hægt að nálgast eldri skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis: Skýrslur og fundir með þingnefndum Alþingis

 
Til baka