logo-for-printing

10. júní 2021

Úthlutun úr menningarsjóði tengdum nafni Jóhannesar Nordals

Á myndinni eru frá vinstri Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, ásamt styrkþegunum, þeim Hauki Má Haraldssyni (Prentsögusetur), Soffíu Auði Birgisdóttur, Jónu Guðbjörgu Torfadóttur, Steinunni Ingu Óttarsdóttur (Skáldaskinna) og Ástu Soffíu Þorgeirsdóttur (Blómaskeið tangós) og Gylfa Magnússyni, formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands.
Á myndinni eru frá vinstri Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, ásamt styrkþegunum, þeim Hauki Má Haraldssyni (Prentsögusetur), Soffíu Auði Birgisdóttur, Jónu Guðbjörgu Torfadóttur, Steinunni Ingu Óttarsdóttur (Skáldaskinna) og Ástu Soffíu Þorgeirsdóttur (Blómaskeið tangós) og Gylfa Magnússyni, formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands.

Í dag fór fram tíunda úthlutun úr menningarsjóði sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals, fyrrverandi seðlabankastjóra. Markmið sjóðsins er að styðja viðleitni einstaklinga og hópa sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf. Alls bárust 29 umsóknir í ár og hlutu þrjú verkefni styrk úr sjóðnum.

Skáldaskinna ehf. hlaut 1,6 milljóna króna styrk fyrir verkefnið skáld.is. Vefurinn Skáld.is er tileinkaður konum og skrifum þeirra en hann var settur á laggirnar árið 2015 og opnaður almenningi árið 2017. Tilgangurinn er að safna saman upplýsingum um íslenskar kvennabókmenntir á einn stað og halda þar utan um ævi og verk íslenskra skáldkvenna og rithöfunda. Ennfremur er lögð áhersla á að halda úti lifandi umræðu og umfjöllun um samtímabókmenntir, útgáfu og viðburði tengda íslenskum kvennabókmenntum.

Ásta Soffía Þorgeirsdóttir hlaut 1,4 milljóna króna styrk fyrir verkefnið „Blómaskeið íslenska tangósins á 20. öldinni.“ Verkefnið felst í að skrásetja einstakt blómaskeið í tónsmíðum á Íslandi þar sem viðfangsefnið voru tangóar, en skeiðið hófst á árunum eftir seinni heimsstyrjöld og varði fram á seinni hluta 20. aldar. Þessi þáttur íslenskrar tónlistarhefðar er menningararfleifð sem vert er að halda utanum og veita verðskuldaða athygli með nýjum útsetningum og aukinni spilun.

Prentsögusetur hlaut eina milljón króna fyrir verkefnið „Þróun bókagerðar á Íslandi 1535-1877.“ Verkefnið felst í sýningu á tækjum til bókagerðar; setning, prentun, bókband. Sýnd verða smærri tæki á sýningarstað, en á myndum, teikningum og hreyfimyndum verður gerð grein fyrir þróuninni. Skálholtsstaður og Prentsögusetur vinna sameiginlega að þessu verkefni og gert er ráð fyrir að fyrsti hluti safnsins verði tilbúinn til sýninga síðar á þessu ári.

Úthlutunarnefndina skipa Hildur Traustadóttir, fulltrúi bankaráðs Seðlabanka Íslands, og er hún jafnframt formaður nefndarinnar, Páll Magnússon, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, og Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.


Til baka