Fara beint í Meginmál
6885 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
5. mars 2026

Seðlabanki Íslands hóf birtingu á föstum lánstímavöxtum (FLV) hinn 7. nóvember 2025. FLV sýna reiknaða vexti verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisskuldabréfa miðað við fastan lánstíma slíkra bréfa til 3, 5 og 10 ára. Nú eru birt söguleg gögn um vextina, reiknuð aftur til byrjun árs 2020.

5. mars 2026

Seðlabankastjóri sat fund Þjóðhagsráðs annan þessa mánaðar þar sem m.a. var fjallað um stöðu efnahagsmála, verðbólgu, launatölfræði og mat bankans á launaskriði.

5. mars 2026

Á fjórða ársfjórðungi 2025 var 38 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 3% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 73,4 ma.kr. en 49,4 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Afgangur af frumþáttatekjum nam 1 ma.kr. en 15 ma.kr. halli var á rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 2% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist því jákvæð um 44,2% af landsframleiðslu.

Halli á viðskiptajöfnuði fyrir árið 2025 í heild nam 177,7 ma.kr. samanborið við 148,5 ma.kr. árið á undan. Halli á vöruskiptajöfnuði var 385,1 ma.kr. en afgangur á þjónustujöfnuði var 273,1 ma.kr. Halli af frumþáttatekjum nam 10,9 ma.kr. en 54,7 halli var á rekstrarframlögum.

Kalkofninn
2. mars 2026

Á alþjóðavettvangi hefur lengi verið viðurkennt að einstaklingar sem gegna eða hafa gegnt áhrifamiklum opinberum störfum geti í ákveðnum tilvikum aukið hættu fyrir viðkomandi á að tengjast spillingu eða misnotkun fjármuna.