Fara beint í Meginmál
6911 niðurstaða fannst
Fjöldi á síðu
Rit og skýrslur
27. mars 2026

Seðlabanki Íslands birtir ársfjórðungslega yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og stöðu fjármálakerfisins, Hagvísa Seðlabanka Íslands. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.

Fjármálaeftirlit
26. mars 2026

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið samráðsferli um samkeppnishæfni bankakerfis Evrópu. Samráðið er liður í undirbúningi skýrslu sem framkvæmdastjórnin mun birta um sama efni síðar á þessu ári.

Kalkofninn
26. mars 2026

Alþjóðapólitísk áhætta hefur verið mikil og vaxandi síðustu mánuði. Átökin við Persaflóa hafa hækkað áhættuálag á fjármálamörkuðum og væntingar eru nú um vaxtahækkanir. Verulegar framboðstruflanir hafa orðið og verð á olíu og öðrum hrávörum hefur hækkað. Áhrif átakanna á alþjóðlega verðbólgu og efnahagsumsvif ráðast að miklu leyti af því hversu langvinn þau verða og hvenær mikilvægar siglingaleiðir opnast á ný.

25. mars 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu mun kynna nýja rannsókn á verðbólgu á Íslandi sem hann hefur unnið ásamt Bjarna G. Einarssyni. Kynningin verður fimmtudaginn 26. mars klukkan 15:00 í Seðlabanka Ísland. Rannsóknin verður birt sem rannsóknarritgerð (Working paper) með titilinn What is the trend? The evolution and drivers of Icelandic trend inflation.

Rit og skýrslur
25. mars 2026

Í Fjármálastöðugleika er tvisvar á ári birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga.

25. mars 2026

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum og er vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. Þeir hafa síðustu misserin endurfjármagnað erlendar markaðsskuldir á hagstæðum kjörum og til lengri tíma en áður. Stríðsátök við Persaflóa hafa leitt til framboðstruflana og verðhækkana á olíu og öðrum hrávörum. Óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum hefur aukist enn frekar, verðbólguhorfur versnað og víða eru væntingar um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif. Afleiðingar þessa gætu með tímanum reynt á fjármálastöðugleika.