Fara beint í Meginmál
6982 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
2. júní 2026

Ásgeir Jónsson flutti erindi á ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins í Hörpu í dag.

2. júní 2026

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands verður birt kl. 8:30, miðvikudaginn 3. júní 2026. Ritin Álagspróf og Viðbúnaður fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum verður birt á vef bankans klukkan 8:35.

Peningastefna
1. júní 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu flutti erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem Seðlabanki Íslands stóð fyrir í samstarfi við The Center for International Macroeconomics við Northwestern-háskóla í Illinois.

Peningastefna
28. maí 2026

Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, kynnti nýlega efni nýútgefinna Peningamála 2026/2 á fundum í fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica Finance. Í kynningunum greindi Karen frá ýmsum atriðum varðandi efnahagsumsvif og verðbólgu.

27. maí 2026

Seðlabanki Íslands stendur fyrir stórri, alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu dagana 28. og 29. þessa mánaðar þar sem seðlabankastjórar, aðrir leiðtogar í efnahagsmálum og fræðimenn frá öllum heimshornum koma saman til að ræða stöðu efnahagsmála og helstu áskoranir í þeim efnum.

Fjármálaeftirlit
21. maí 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

20. maí 2026

Grunnur dráttarvaxta er breyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 04/2026 dagsettri 20. apríl sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,25 prósentur síðan þá. Dráttarvextir breytast sem því nemur og verða 15,50% fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2026.

20. maí 2026

Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2025 verður kynnt og er til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, fimmtudaginn 21. maí 2026, klukkan 9:00. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika verða gestir á fundinum.

Rit og skýrslur
20. maí 2026

Ritið Peningamál gerir ársfjórðungslega grein fyrir horfum í peningamálum og þar er birt spá um verðbólgu sem gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.