Fara beint í Meginmál
6846 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Peningastefna
3. febrúar 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands á morgun, miðvikudaginn 4. febrúar 2026, kl. 8:30. Ritið Peningamál verður birt á vefnum kl. 8:35. Vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar.

Fjármálaeftirlit
2. febrúar 2026

Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) hefur birt nokkur hollráð til fjárhrifavalda (e. finfluencer) sem kynna hvers kyns fjármálafurðir- eða þjónustu. Sérstök ábyrgð fylgir því að kynna slíkar vörur og því nauðsynlegt að hafa varann á.

Fjármálaeftirlit
28. janúar 2026

Seðlabanki Íslands hefur birt stefnumarkandi áherslur við eftirlit á fjármálamarkaði fyrir árin 2026 til 2028.

Peningastefna
28. janúar 2026

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 19. til 21. janúar sl. Leitað var til 39 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana, fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar og tryggingafélaga. Svör fengust frá 31 aðila og var svarhlutfallið því 79%.

26. janúar 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1420/2020, um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla með tilliti til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.