Fara beint í Meginmál
6954 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
29. apríl 2026

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans er varða fjármálastöðugleika. Í fjármálastöðugleika felst að fjármálakerfið geti staðist áföll í efnahagslífi og á fjármálamörkuðum, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Peningastefna
29. apríl 2026

Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, um breytingar á útlánareglum, útlánavöxtum og vaxtaálagi og hvaða þættir hafi haft ráðandi áhrif á þær breytingar á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var síðast framkvæmd 1. til 17. apríl sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara.

28. apríl 2026

Árshlutauppgjör Seðlabanka Íslands fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 liggur nú fyrir. Það sýnir rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymisyfirlit fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. mars 2026 og er birt í samræmi við 38. grein laga um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019.

21. apríl 2026

Vorfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og tengdir fundir fóru fram í Washington DC. í liðinni viku. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu tóku þátt í fundunum ásamt öðrum fulltrúum Seðlabanka Íslands.