Fara beint í Meginmál
6897 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Peningastefna
18. mars 2026

Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, hélt kynningu á fréttamannafundi um yfirlýsingu peningastefnunefndar 18. mars 2026. Þar skýrði hann þá þætti sem lágu til grundvallar ákvörðun nefndarinnar. Meðal annars fjallaði hann um innlendan verðbólguþrýsting og verðbólguvæntingar, launaþróun á Íslandi í samanburði við nágrannalönd og áhrif átakanna við Persaflóa á olíuverð.

Peningastefna
18. mars 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50%. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur.

Peningastefna
17. mars 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands á morgun, miðvikudaginn 18. mars 2026, kl. 8:30. Vefútsending hefst klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

Fjármálaeftirlit
10. mars 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur gefið út endurskoðuð Almenn viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum.