Fara beint í Meginmál
7028 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Rit og skýrslur
19. ágúst 2026

Ritið Peningamál gerir ársfjórðungslega grein fyrir horfum í peningamálum og þar er birt spá um verðbólgu sem gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

Peningastefna
19. ágúst 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,00%. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Peningastefna
18. ágúst 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands, miðvikudaginn 19. ágúst 2026, kl. 8:30. Peningamál verða birt kl. 8:35 og vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar og efni Peningamála á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

Fjármálaeftirlit
18. ágúst 2026

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) kynnti nýverið aðgerðir sem miða að samþættara, skilvirkara og samkeppnishæfara bankakerfi. Hagaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri við framkvæmdastjórnina til 17. næsta mánaðar.

Fjármálaeftirlit
18. ágúst 2026

Evrópsku eftirlitsstofnanirnar EBA, EIOPA og ESMA (ESA-stofnanirnar) hafa birt sameiginlega yfirlýsingu um net- og upplýsingatækniáhættu sem stafað getur af háþróuðum gervigreindarlíkönum (e. frontier AI models).

Peningastefna
14. ágúst 2026

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 10. til 12. ágúst sl. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti meiri verðbólgu á þessu ári en í síðustu könnun í maí. Þeir gera þó ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári og miðað við miðgildi svara eru væntingar þeirra til verðbólgu eftir eitt ár óbreyttar milli kannana, eða 3,9%.

30. júlí 2026

Árleg skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenskt efnahagslíf var birt í dag á vef sjóðsins. Reglubundnar úttektir á stöðu og horfum í efnahagslífi aðildarlandanna eru gerðar á grundvelli 4. greinar stofnsáttmála um sjóðinn (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum átti fundi með íslenskum stjórnvöldum og ýmsum hagaðilum í júní sl.

Fjármálaeftirlit
30. júlí 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot Trygginga og ráðgjafar ehf. á tilteknum ákvæðum laga nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga og laga nr. 30/2004 um vátryggingasamninga.

Rit og skýrslur
29. júlí 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „Too Little, Too Late? Testing The Optimality of Monetary Policy in Iceland“ eftir Birtu B. Haraldsdóttur og Bjarna G. Einarsson, hagfræðinga á sviði hagfræði og peningastefnu.

28. júlí 2026

Árshlutauppgjör Seðlabanka Íslands fyrir fyrri helming ársins 2026 liggur nú fyrir. Það sýnir rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymisyfirlit fyrir tímabilið frá 1. janúar til 30. júní 2026 og er birt í samræmi við 38. grein laga um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019.