Fara beint í Meginmál
7088 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Peningastefna
18. nóvember 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Fjármálaeftirlit
18. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér dreifibréf nr. 19/2026 til aðila sem gefa út gjafakort, gjafabréf eða sambærilegar greiðslulausnir, meðal annars í smáforritum. Í dreifibréfinu er vakin athygli á tilteknum undanþágum frá gildissviði laga nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu og tilkynningarskyldu sem kann að fylgja slíkri starfsemi.

Peningastefna
18. nóvember 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar var birt á vef Seðlabanka Íslands í morgun, miðvikudaginn 18. nóvember 2026, kl. 8:30. Peningamál voru birt kl. 8:35 og vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar og efni Peningamála á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

Rit og skýrslur
18. nóvember 2026

Í ritinu Peningamálum er ársfjórðungslega gerð grein fyrir horfum í peningamálum og þar er birt spá um verðbólgu sem gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

18. nóvember 2026

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti fyrr í þessum mánuði erindi um hlutverk gagnsæis í seðlabankastarfsemi á alþjóðlegu ráðstefnunni „The SNB and its Watchers" sem Karl Brunner Institute stóð fyrir.

Rit og skýrslur
11. nóvember 2026

Skýrsla Seðlabanka Íslands um þróun svika í greiðsluþjónustu hefur verið birt. Skráðum svikatilvikum við millifærslur fjölgaði úr 322 árið 2023 í 1.358 árið 2025 og hafa þau því meira en fjórfaldast á tveimur árum. Skráð svikatilvik við notkun greiðslukorta voru um 29 þúsund árið 2025, álíka mörg og árið 2023, eftir fækkun árið 2024. Fjárhæð skráðra svika við notkun greiðslukorta nam um 510 milljónum króna árið 2025 og við millifærslur um 845 milljónum króna. Skráð fjárhagslegt tjón vegna svika við millifærslur nam um 683 milljónum króna, samanborið við um 172 milljónir króna árið 2024.

Peningastefna
11. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 2. til 4. nóvember sl. Leitað var til 37 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör bárust frá 31 aðila og var svarhlutfallið því 84%.

10. nóvember 2026

Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur samþykkt beiðni Seðlabanka Íslands um aðgang að endurhverfum viðskiptum eða EUREP-fyrirgreiðslunni (Eurosystem Repo Facility for Central Banks). Hún veitir bankanum aðgang að lausafé í evrum til skamms tíma og er því til þess fallin að auka viðnámsþrótt og sveigjanleika við stýringu gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Fjármálaeftirlit
9. nóvember 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Peningastefna
6. nóvember 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu hélt erindi í dag fyrir MBA-nemendur við Háskóla Íslands um peningastefnuna á umbrotatímum.