Fara beint í Meginmál
6791 niðurstaða fannst
Fjöldi á síðu
8. desember 2025
Seðlabanki Íslands hefur gefið út reglur um breytingu á reglum nr. 1200/2019 um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands.
Fjármálaeftirlit
8. desember 2025
Seðlabanki Íslands hélt fræðslufund fyrir skemmstu um lög nr. 71/2025 um verðbréfun sem innleiða reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun.
5. desember 2025
Frá og með mánudeginum 8. desember n.k. verður reglubundnum gjaldeyriskaupum Seðlabanka Íslands hætt.
5. desember 2025
Tekin hefur verið ákvörðun um að gamlársdagur verði framvegis ekki viðskiptadagur hjá Seðlabankanum. Lokað verður fyrir viðskipti í stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands og á millibankamörkuðum með gjaldeyri og krónur þann dag. Kortauppgjörskerfi Seðlabankans verður jafnframt lokað. Verðbréfauppgjörskerfi hafa hingað til verið lokuð á gamlársdag.
Fjármálaeftirlit
4. desember 2025
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem ætlað er að innleiða reglugerð (ESB) 2024/1612 (CRR III), sem breytir reglugerð (ESB) nr. 575/2013, um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja (CRR). Á meðal breytinga samkvæmt CRR III eru breytingar á áhættuvogum svonefndra framkvæmdalána sem einkum eru veitt byggingarverktökum.
4. desember 2025
Afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd var 26,9 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi 2025 eða 2,1% af landsframleiðslu. Á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins mælist halli á viðskiptajöfnuði 3,8% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 101,6 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi en 137,4 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Afgangur á frumþáttatekjum nam 6,2 ma.kr. en 15,1 ma.kr. halli mældist á rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 5,2% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist því jákvæð um 43,2% af landsframleiðslu.