Fara beint í Meginmál
6864 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
Peningastefna
16. febrúar 2026

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund á morgun, þriðjudaginn 17. febrúar, til að fjalla um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir síðari hluta ársins 2025.

16. febrúar 2026

Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, kynnti nýlega efni nýútgefinna Peningamála, fyrsta heftis 2026, á fundum í fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica Finance. Í kynningunum greindi Karen frá ýmsum atriðum varðandi efnahagsumsvif og verðbólgu.

Fjármálaeftirlit
13. febrúar 2026

Landsréttur kvað upp dóm í máli Símans hf. gegn Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu í gær, 12. febrúar 2025. Í málinu var tekist á um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands frá 31. október 2023 um að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 76.500.000 krónur á Símann hf. fyrir brot gegn þágildandi 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og 17. gr. reglugerðar um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.

Fjármálaeftirlit
12. febrúar 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf með bréfi, dags. 13. nóvember 2024, athugun á umgjörð útvistunar hjá Teya Iceland hf. Niðurstaða athugunarinnar lá fyrir í nóvember 2025.

10. febrúar 2026

Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, hélt erindi á ráðstefnu Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) og Nasdaq í dag, þriðjudaginn 10. febrúar. Ráðstefnan bar yfirskriftina: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð?

Fjármálaeftirlit
9. febrúar 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur haft til meðferðar mál sem varðar brot Kviku banka hf. gegn 1. mgr. 26. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 (MiFIR) sem hefur öðlast lagagildi á Íslandi, sbr. 1. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að tilkynna fjármálaeftirlitinu ekki um öll viðskipti með fjármálagerninga á tímabilinu 14. desember 2022 til 7. febrúar 2024.