logo-for-printing

10. október 2016

Fjárfestingar lífeyrissjóða í erlendum fjármálagerningum

Bygging Seðlabanka Íslands
Frá miðju síðasta ári til loka júní í ár veitti Seðlabanki Íslands lífeyrissjóðum og öðrum vörsluaðilum séreignarlífeyrissparnaðar undanþágur frá lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál til fjárfestingar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri samtals að fjárhæð 40 ma.kr. Aðilar nýttu sér 34,7 ma.kr fjárhæðarinnar til erlendra fjárfestinga á þessu tímabili eða sem nemur 87% af veittri heimild. Af undanþágum sama efnis samtals að fjárhæð 40 ma.kr. sem veittar voru fyrrgreindum aðilum vegna tímabilsins 1. júlí til 30. september sl. nýttu sjóðirnir 30,8 ma.kr. til erlendra fjárfestinga á tímabilinu eða sem nemur 77% af veittri heimild.
Til baka