logo-for-printing

24. október 2013

Nýr tíu þúsund króna seðill settur í umferð í dag

Mynd af tíu þúsund króna seðli

Seðlabanki Íslands setur nýjan tíu þúsund króna seðil í umferð í dag, fimmtudaginn 24. október. Tilgangur með útgáfu seðilsins er að gera greiðslumiðlun á Íslandi liprari og hagkvæmari, meðal annars með því að fækka seðlum í umferð. Í lok september voru 13,9 milljónir seðla í umferð, þar af 7,1 milljón 5.000 kr. seðla.

Seðillinn er tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni, en í seðlinum má finna vísanir í störf Jónasar. Gerð seðilsins er svipuð og þeirra seðla sem nú eru í umferð, auk nýrra og fullkomnari öryggisþátta. Aðallitur seðilsins er blár. Kristín Þorkelsdóttir hannaði seðilinn. Samstarfsmaður hennar og meðhönnuður var Stephen Fairbairn.

Öryggisþættir 10.000 kr. seðilsins eru að mestu leyti þeir sömu og annarra íslenskra seðla. Helsti munurinn felst í því að í staðinn fyrir öryggisþráð og málmþynnur er kominn nýr öryggisþráður sem heitir Optiks. Þráðurinn er 18 millimetra breiður með glugga. Optiks-öryggisþátturinn er í rauninni margvíður, því hann er samansettur af mörgum öryggisþáttum. Á heimasíðu Seðlabanka Íslands má finna upplýsingar um Optiks-þáttinn og aðra öryggisþætti sem eru í 10.000 kr. seðlinum.

Hefðbundið blindramerki er á seðlinum. Það er fjögur lárétt upphleypt strik á framhlið. Hægt er að nota Optiks-þáttinn sem blindramerki. 10.000 kr. seðillinn er 70 millimetrar sinnum 162 millimetrar að stærð og er því 7 millimetrum lengri en 5.000 kr. seðillinn, en það auðveldar aðgreiningu á milli þeirra.

Breska fyrirtækið De La Rue Plc. prentaði 10.000 kr. seðilinn, en fyrirtækið og forverar þess hafa prentað seðla fyrir Ísland í 83 ár. Prentaðar voru fjórar milljónir seðla og er innkaupsverð hvers seðils um 29 kr., en tveir fimm þúsund króna seðlar hefðu kostað 36 krónur, þ.e. 18 kr. stykkið. Í þessu sambandi má einnig benda á að öryggisþættir hins nýja seðils eru dýrari, t.d. vegna hins margvíða Optiks-þáttar.

Á árinu 2012 námu peningaúttektir úr hraðbönkum á Íslandi um 55 ma.kr. Um þessar mundir er meðalúttekt úr hraðbanka um 10.300 kr. Á næstunni mun 10.000 kr. seðillinn fara í hraðbanka hér á landi en óvíst er í hve mörgum þeir verða til að byrja með. Seðillinn verður hins vegar fáanlegur í afgreiðslum bankaútibúa.

Á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is , er kynningarefni um 10.000 kr. seðilinn, bæði nánari lýsingar á öryggisþáttum og myndefni. 

Sjá m.a. hér: 10.000 króna seðill.
 
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600.

 

Til baka

Myndir með frétt

Bjarni Benediktsson og Már Guðmundsson við útgáfu nýs tíu þúsund króna seðils