Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,00%. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.
Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár. Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Undirliggjandi verðbólga hefur haldist stöðug og er tekin að hjaðna á suma mælikvarða í takt við vaxandi slaka í þjóðarbúinu. Annarrar umferðar áhrif þessara verðhækkana virðast því enn sem komið er vera minni en upphaflega var óttast. Þá hefur verðbólguálag á markaði einnig lækkað á ný eftir hækkun í vor.
Verðbólguvæntingar eru þó enn of háar og undirliggjandi verðbólga of mikil. Þó búist sé við að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári er óvissa áfram mikil ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.
Í ljósi mikillar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Frétt nr. 8/2026
19. ágúst 2026
Sjá enn fremur: Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands