Seðlabanki Íslands mun halda áfram reglubundnum gjaldeyriskaupum sínum á millibankamarkaði fram til 30. nóvember nk. Kaupin verða þó minnkuð úr 12 milljónum evra á viku í 6 milljónir evra á viku frá og með 16. október. Kaupin fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum skömmu eftir opnun markaðarins, þrjár milljónir evra í hvert skipti.
Meginmarkmiðið með gjaldeyriskaupunum er að mæta tilfallandi gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og viðhalda þar með stærð gjaldeyrisforða bankans. Gjaldeyrisforðinn gegnir veigamiklu hlutverki í að stuðla að stöðugleika og viðnámsþrótti þjóðarbúsins. Þörf fyrir regluleg gjaldeyriskaup verður endurmetin eftir því sem þurfa þykir.
Bankinn mun eftir sem áður beita viðskiptum á gjaldeyrismarkaði til þess að draga úr skammtímasveiflum í gengi krónunnar eins og hann telur tilefni til.