Í lögum um Seðlabanka Íslands segir að ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum séu teknar af peningastefnunefnd og að opinberlega skuli birta fundargerðir nefndarinnar og gera grein fyrir ákvörðunum hennar og forsendum þeirra. Á grundvelli þessa birtir peningastefnunefnd fundargerðir tveimur vikum eftir að ákvarðanir hennar eru kynntar. Í þeim er gerð grein fyrir ákvörðunum nefndarinnar og forsendum þeirra. Í fundargerðunum koma einnig fram upplýsingar um hvernig atkvæði einstakra nefndarmanna féllu, helstu sjónarmið sem komu fram í máli þeirra og á hvaða bili nefndarmenn töldu rétt að halda vöxtum.
Hér birtist fundargerð fundar peningastefnunefndarinnar 5.-6. október 2026. Á honum ræddi nefndin efnahagsþróunina, þróun á fjármálamörkuðum, ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum og kynningu þeirra ákvarðana 7. október.