logo-for-printing

31. ágúst 2016Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.

Fyrirlestur Þórarins G. Péturssonar hjá Félagi atvinnurekenda 30. ágúst 2016

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, flutti í gær fyrirlestur hjá Félagi atvinnurekenda um stöðu og horfur í efnahagsmálum, peningastefnuna og fleira.

Nánar
29. ágúst 2016Peningastefnunefnd 2016

Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis

Vefútsending frá opnum fundi peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd hefst nú klukkan 9:30. Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Þrettándi fundur peningastefnunefndar með Alþingi verður haldinn í dag.

Nánar
24. ágúst 2016Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.

Kynning Þórarins G. Péturssonar á verðbólguspá og efni Peningamála

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og meðlimur í peningastefnunefnd, kynnti verðbólguspá bankans og annað efni Peningamála sem birt var í tengslum við kynningu á yfirlýsingu peningastefnunefndar í morgun. Kynningarefni Þórarins er nú aðgengilegt hér á vef bankans.

Nánar
24. ágúst 2016Már Guðmundsson seðlabankastjóri á ársfundi bankans

Orð seðlabankastjóra í kjölfar kynningar á yfirlýsingu peningastefnunefndar

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar bætti við nokkrum orðum á kynningarfundi í Seðlabanka Íslands í morgun í kjölfar þess að ákvörðun og yfirlýsing peningastefnunefndar var kynnt. Þessi orð seðlabankastjóra eru nú aðgengileg hér á vef Seðlabanka Íslands.

Nánar