Meginmál
6562 færslur fundust
Fjöldi á síðu
Kalkofninn
2. júní 2025

Hvernig hefur peningastefnan áhrif á efnahagsumsvif og verðbólgu? Hversu langan tíma tekur fyrir þessi áhrif að koma fram og hversu mikil eru þau? Þetta eru meðal lykilspurninga við mótun peningastefnunnar á hverjum tíma. Þessum farvegum peningastefnunnar um þjóðarbúið er lýst með því sem kallað er miðlunarferli peningastefnunnar.

Fréttir og tilkynningar
2. júní 2025

Karen Á. Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, kynnti nýlega efni nýútgefinna Peningamála á fundum í fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica.

Fréttir og tilkynningar
28. maí 2025

Hinn 26. apríl 2023 hlaut félagið MGMT Venture Capital ehf. skráningu sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Fjármálaeftirlitið hefur fallist á beiðni MGMT Venture Capital ehf. um afskráningu, þar sem enginn sjóður um sameiginlega fjárfestingu er í rekstri félagsins. Afskráning miðast við 27. maí 2025.

Fréttir og tilkynningar
27. maí 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf afmarkaða athugun á fylgni við lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Byggðastofnun með bréfi dagsettu 14. nóvember 2024. Niðurstaða athugunarinnar lá fyrir í apríl 2025.